13.10.2004 21:19 | ALMENNT
AIRWAVES 2004
Nú fer að styttast í Iceland Airwaves 2004 en þetta er að ég held í fimmta skipti sem þessi frábæra hátíð er haldin. Það eru mörg skemmtileg bönd sem ég hlakka mikið til að sjá og má þar helst nefna, Adem, Hot Chip, Four Tet, Magnet og svo auðvitað fjölmörg íslensk bönd sem ég hef eflaust séð áður.Dagskráin er nokkuð þétt svo að maður á ekki auðvelt með að velja á milli hljómsveita því auðvitað skarast einhverjir viðburðir.
Hinsvegar tókum við Addi okkur til og settum dagskrána upp á mun betri máta (að okkur fannst) en gert er á vef hátíðarinnar. Þetta ætti að auðvelda fólki að sjá hvenær bönd eru að spila á sama tíma. Tekið skal fram að sumir atburðir voru skráðir með meiri nákvæmni en taflan býður upp en okkur fannst fimm mínútur til eða frá ekki skipta máli enda kemur þetta væntanlega allt til með að færast örlítið til.
Þetta má svo nálgast hérna á bæði HTML- og Excel-formi.
Ps. Ég ætla ekki að ábyrgjast að HTML útgáfan sé frábær og æðisleg (lesist: validate-ast) enda sá Excel um kóðun á henni :)
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.


SVÖR FRÁ LESENDUM
Frank skrifaði þann 13. october kl. 21:26
of margir litir fyrir augun mín! hlustarðu ekkert á Jón Frey?
Hjalti Jakobsson skrifaði þann 13. october kl. 21:30
Hey, enga stæla lagsmaður!
Frank skrifaði þann 13. october kl. 21:31
en að því frátöldu ertu auðvitað æði að hafa gert þessa töflu já. Aldrei fyrr hefur mannkynið séð jafn góða töflu!
Siggi Jarl Kúkakarl skrifaði þann 13. october kl. 22:30
úff, sé ekki neitt sem mig langar að sjá þarna... en ég er náttúrulega bara menningarsnauður idiot
en hey, Frank, ætlarðu ekki að sjá Frank Murder??? AHAHAHAHAHAHAHA ...shit
Frank skrifaði þann 14. october kl. 16:52
HAHAHAIHOAIHOHIOAHOIEHOIE ...... nei
Sigurjón skrifaði þann 17. october kl. 15:10
Snilld Hjalti....þetta var gott að fá.
Áa skrifaði þann 17. october kl. 20:47
Jeminn, þvílík vísindi
Rúnar skrifaði þann 18. october kl. 09:09
Sniðugur.... gaman..... fann nú reyndar dagskrá á einhverjum pöbb umhelgina sem var í vasabroti,mjög svo þægileg... verð samt að nota Hjalta-Design annars verð ég buffaður
hjalti skrifaði þann 18. october kl. 17:00
Satt!
Hörður Sveins skrifaði þann 21. october kl. 09:40
Hjalti hvar er þrívíddin? vantar allt 3D og engar hreyfimyndir... það nennir enginn að skoða svona :p
rass
Bergen skrifaði þann 21. october kl. 19:08
Þetta er unaðslega fögur dagskrá, ég fæ bara í litla bjögga við að sjá þessa litadýrð.
Hörður, þrívídd er bara fyrir star trek nörd! >:l
Kirk skrifaði þann 23. october kl. 17:47
Bergen var þetta ekki óþarfi, slá mann langt fyrir neðan beltisstað
TIL BAKA
SENDU ÞITT SVAR
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.