HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

03.11.2004 14:59 | ALMENNT

TÓNLISTARBLOGG?

Ég hef lengi verið að velta fyrir mér hvort ég eigi að byrja að skrifa hérna einskonar tónlistarblogg. Nokkrir hafa talað um að ég sé eins og tónlistartrúboði og þröngvi allskyns tónlist upp á fólk hvort sem því líkar betur eða verr.
Hugmyndin er því að skrifa hér reglulega um hljómveitir eða jafnvel plötur sem ég hef rekist á og fíla vel. Ég ætla samt ekki að taka þátt í kapphlaupinu við aðra tónlistarbloggara um að vera alltaf með það nýjasta og ferskasta heldur bara skrifa um það sem mér dettur í hug sama hvort það er gamalt eða nýtt, vinsælt eða óþekkt.
Ég ætla þess vegna að biðja ykkur að kommenta og segja mér hvort þið hafið áhuga á að lesa svona tónlistarblogg frá mér.

Kveðja,
H

SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. Frank skrifaði þann 3. november kl. 15:01

    tónlistartrúboði? er það einhver stelling?

  2. hjalti skrifaði þann 3. november kl. 15:02

    híhí

  3. Frank skrifaði þann 3. november kl. 15:02

    en annars jú, komdu með tónlistartrúboðablogg

  4. Bjarki skrifaði þann 3. november kl. 15:10

    Já endilega, strax í gær.

  5. Bergen skrifaði þann 3. november kl. 15:14

    Ég bíð spenntur eftir umsögn þinni um 100% Nylon!

  6. Rúnar skrifaði þann 3. november kl. 15:14

    hvernig væri nú að þú bara bloggaðir almennt... tónlistarbloggið yrðir bara góður bónus

  7. hjalti skrifaði þann 3. november kl. 15:24

    Blogga um hvað?
    Að ég sá konu bora í nefið á ljósum?
    Ég nenni ekki að skrifa eitthvað blaður um sjálfan mig, vil frekar reyna að skrifa um eitthvað sem ég held að fólk hafi áhuga á.

  8. Kirk skrifaði þann 3. november kl. 16:11

    þarft ekki að skrifa baun um sjálfan þig eða hvað þú lendir í,, meira bara í pælingar og svona

  9. siggi eggertsson skrifaði þann 3. november kl. 16:12

    já vinan, bloggaðu tónlistina.
    óþarfi samt að fá álit frá fólki hvort þú eigir að gera það!
    heh!

  10. Brynjar skrifaði þann 4. november kl. 11:06

    Ég skal lesa þetta blogg

  11. karen skrifaði þann 4. november kl. 16:30

    áfram hjalti þú átt stuðning okkar allra, auðgaðu nú líf okkar með þekkingu þinni

  12. bjössi skrifaði þann 5. november kl. 12:05

    það var mikið að þú ákvaðst að deila brunni þínum með okkur! ég vil líka fá mp3 linka, ef þú ert t.d. að tala um einhverja hljómsveit væri mjög sniðugt að leyfa okkur að heyra t.d. eitt vel valið lag frá þeim. takk fyrir og góða nótt.

  13. hjalti skrifaði þann 5. november kl. 12:49

    Hehe,, maður er samt smá smeykur við að setja inn lög. Alltaf verið að kæra alla út og suður nú til dags.
    Annars er þetta blogg varla mikið fyrir Bjössa og Hödda því þeir hlusta á alveg það sama og ég og erfitt fyrir mig að finna eitthvað nýtt handa þeim :)

  14. Steinar skrifaði þann 8. november kl. 13:23

    jájá flví ekki fla› Hjalti beibí ég ver› einhvernveginn a› drepa tímann í vinnunni og flví ekki a› ey›a honum í a› lesa um tónlist og kannski ég geri fla› me›an ég hlusta á tónist hah. sni›ugur strákurinn !

  15. Krilli skrifaði þann 9. november kl. 21:36

    Já, skelltu í það. Það er líka mjög gaman að skrifa um tónlist - það er erfiðara en virðist í fyrstu. Svo þegar maður fer aftur að hlusta á tónlist eftir að hafa skrifað (reynt, amk.) um hana heyrir maður öðruvísi. Meira. Ástæðan fyrir því að ég, ókunnugur maðurinn, er að agítera fyrir þessu er að mig vantar fleiri rökstudda gruni (gruna?) um góða tónlist.

  16. Ragnar Freyr skrifaði þann 9. november kl. 22:32

    Ég hef áhuga!
    Settu þig í trúboðastellingar!!!

  17. steinar kaktus skrifaði þann 10. november kl. 21:44

    ég skal lesa og hlusta, ef það er eitthvað af viti.. :P

  18. siggi eggertsson skrifaði þann 12. november kl. 14:52

    ég væri til í að lesa kynlífsblogg frá hjalta!

  19. Jónas Tryggvi skrifaði þann 15. november kl. 10:50

    Ámm, rétt hjá Krilla.. Tónlistarblogg er góð hugmynd, en mar þarf að skrifa að helvíti miklilli sannfæringu til að fá lýðinn til að fýla tónlistina sína.

    T.d. efast ég um að öllum finnist lagið sem ég er að hlusta á núna ( http://www.brothomstates.com/kobn-tich-ey/mp3/bStates_Kobn-Tich-Ey_04_Whind.mp3 ) vera hafn mikil snilld og mér :)

    Gaman að vera svona ókunnugir á bloggi.. tíhh

  20. Helgi Vilberg Helgason skrifaði þann 15. november kl. 18:17

    Ég hvet þig til þess að gera þetta, Hjalti. Ég hálfpartinn bíð alltaf eftir því að þú bendir mér á einhverja nýja tónlistarmenn :)

  21. hjalti skrifaði þann 15. november kl. 22:38

    Greinilegt að ég get ekki bakkað með þetta núna :)

  22. áslaug skrifaði þann 16. november kl. 15:47

    takk fyrir að hafa listann yfir það sem þú ert að hlusta á... get svona nokkurn vegin treyst á að það sem ég þekki ekki þar, sé gott, miðað við allt sem þú ert að hlusta á!
    Þekkti t.d ekki CocoRosie, so far so gúd, takks!

  23. Trausti skrifaði þann 17. november kl. 23:38

    Jájá, ég styð þetta. Reyndar er það fúlltæmdjobb að hlusta á allt sem þú bendir á þegar þú ert í ham ;)

  24. Ásgeir J skrifaði þann 19. november kl. 20:00

    Já ég vil sjá þessa þróun strax!!! ;)

    Nei djók, samt þetta er góð hugmynd, auk þess þar sem ég er númer 24 sem segir þér að drífa í þessu þá......you know.

  25. Frank skrifaði þann 24. november kl. 15:45

    sko, að koma með svona yfirlýsingar og skrifa svo ekkert í þrjár vikur, ha hjalti...

  26. Hjalti skrifaði þann 24. november kl. 17:03

    hey.. við vorum bara að klára prófin.. ætla bæta úr þessu núna..

  27. karen skrifaði þann 24. november kl. 17:13

    það er eins gott drengur....

  28. addi skrifaði þann 29. november kl. 19:42

    Ef þú tekur uppá að tónlista blogga þá ætla ég að comment blogga um tónlist.

    vííííííííííí

  29. Díana skrifaði þann 1. december kl. 11:06

    Hjalti ... væri ekki góð hugmynd að taka fyrst fyrir Annie og nýja diskinn hennar Anniemal. Það gerist allavegna ekki betri tónlist heldur en það og þar af leiðandi er bara eðlilegt að þú byrjir þetta tónlistarblogg á umfjöllun um þann disk. hehehe

  30. AJ skrifaði þann 11. december kl. 21:29

    Nú hvað er þetta maður, bloggaðu þá!

  31. Sveinn Þorri Davíðsson skrifaði þann 12. december kl. 04:12

    já, tónlistarblog væri áhugavert að lesa!
    ég myndi heimsækja síðuna helmingi oftar :)

  32. Frnak skrifaði þann 15. december kl. 10:21

    Hjalti skrifaði þann 24. nóvember kl. 17:03

    hey.. við vorum bara að klára prófin.. ætla bæta úr þessu núna..

    hmmm.....

  33. hjalti skrifaði þann 15. december kl. 23:48

    Já ég er svo vitlaus.. fattaði ekki að þetta verkefni væri meira en að raða componentum...

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.