HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

16.12.2004 00:09 | TÓNLIST

WOMAN KING

Jæja loksins kemur fyrsta bloggið um tónlist.
Vegna þess að mér áskotnaðist nýr EP í kvöld þá hef ég ákveðið að skrifa um hann.
Þetta er s.s. nýjasta efnið frá Iron & Wine, sem er fyrir þá sem ekki þekkja, eins manns verkfeni sem Samuel Beam stendur á bak við.
Hann hefur sent frá sér tvær breiðskífur sem heita The Creek Dank The Cradle (2002) og Our Endless Numbered Days (2004). Þessar tvær plötur eru báðar æðislega frábærar og ég mæli með þeim fyrir alla sem kunna að meta rólegt gítarraul.
Platan sem ég nældi mér í heitir Woman King og ininheldur sex ný lög og er væntanleg snemma á næsta ári. Það sem mér finnst skemmtilegast við þessa plötu er að kallinn er mættur með aðeins fleira en bara gítarinn og fer örlítið lengra með lögin en á fyrri plötum sem voru frekar hráar. Hann er samt ekkert með neina stæla og kemur þessu öllu mjög vel frá sér og platan rennur mjög þægilega í gegn. Ég ætla að mæla sérstaklega með tveimur lögum sem mér finnst vera lýsandi fyrir þetta efni og það er titillagið Woman king og In my lady's house. Annars er óhætt að mæla með þessu öllu og ekki síst fyrir þá sem hafa gaman að fyrri diskum.

Ps. Ég kann ekki við að vista lögin hér fyrir lesendur en það má þó alltaf hnippa í mig og ég ætti að geta reddað sem flestum.

SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. Hjalti skrifaði þann 16. december kl. 00:12

    Jezebel er líka æðislegt lag!!

  2. Bergþóra skrifaði þann 16. december kl. 00:14

    Vúhú.. það kom að því!
    ..meira svona :)

  3. Karen skrifaði þann 16. december kl. 00:15

    Takk Hjalti. Sumir koma seint en koma þó.

  4. hjalti skrifaði þann 16. december kl. 00:19

    Núna finnst mér hvert lagið á fætur öðru betra.. en jæja.. bara allir að hlusta á alla plötuna!!

  5. Karen skrifaði þann 16. december kl. 00:19

    já og ég segi bara nammi namm

  6. hjalti skrifaði þann 16. december kl. 00:35

    Já ég held ég slái met með að commenta mest á mína eigin færslu.. kennir mér að hlusta betur áður en ég skrifa. En mig langar að taka fram að það eru sérstaklega skemmtilegir strengir í tveimur lögum, Grey stables og Evening on the ground. Gefur þeim auka kraft sem hefur stundum vantað í lögin hans.

  7. Brynjar skrifaði þann 16. december kl. 01:13

    Vá hvað þetta er góður diskur.... snilldin ein. Takk fyrir þetta Hjalti

  8. bjössi skrifaði þann 16. december kl. 10:17

    mig grunar að margir þeirra sem fíla damien rice muni fíla seinustu plötu iron & wine. og það eru margir á íslandi sem fíla damien rice, þannig að þetta er góð kynning hjá þér hjaltus. á eftir að ná í þessa nýjustu skífu, hlakka til að heyra..

  9. hjalti skrifaði þann 16. december kl. 10:20

    Þetta er ennþá meira í Damien Rice fíling sko, sérstaklega þegar hann er kominn með strengi og gott ef það er ekki stúlka sem syngu rmeð honum í einu laginu.

  10. Trausti skrifaði þann 16. december kl. 19:55

    Já þarna kom það! Þetta er snilld. Meira meira.

  11. Leifurr skrifaði þann 17. december kl. 09:06

    Þetta er alveg þokkalega magnað. Gaman hvernig hann notar bluesgítartaktik í sumum lögunum og trommurnar eru BARA flottar. Hann mætti alveg "missa sig" aðeins meira í söngnum, fyrir minn smekk en þá væri ekki svona þægilegt rennsli a disknum. Niðurstaða: aðgengilegt, áreynslulaust en samt eitthvað þarna sem mann langar að heyra aftur og aftur...
    Takk fyrir að leyfa mér að njóta Hjalti.

  12. Ella skrifaði þann 18. december kl. 13:29

    Þetta er æðislegur diskur.. búin að hlusta endalaust mikið á hann. Jezebel er meiriháttar!!! Go Hjalti.. :)

  13. Frank skrifaði þann 20. december kl. 15:59

    Þetta er einn sá albesti diskur sem ég hef heyrt í langan tíma....

  14. Helga Sjöfn skrifaði þann 6. january kl. 01:39

    Er búin að hlusta á þennan disk milljón sinnum. Mér finnst Jezebel og freedom hangs like heaven standa uppúr, allgjör snilld.
    Takk fyrir mig.

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.