HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

17.12.2004 19:22 | TÓNLIST

SUPERWOLF

Jæja ég er mættur aftur, þýðir ekkert að slaka á þegar maður fær svona góðar viðtökur.
Núna ætla ég að segja ykkur frá Superwolf sem er glænýtt efni frá Will Oldham (stundum þekktur sem Bonnie Prince Billy) og Matt Sweeney. Það ættu flestir að þekkja Will Oldham eða hafa heyrt um hann, hann hefur gefið út margar frábærar plötur og ekki ómerkilegri menn en Johny Cash hafa coverað hann. Hann hefur einnig hitað upp fyrir bæði Björk og Sigur Rós. Hann er klárlega snillingur og ætla ég ekki að hafa fleiri orð um það nema þeir sem vilja kíkja betur á hann ættu að kynna sér plöturnar I see a darkness, Master and everyone og Ease down the road.
Matt Sweeney er hinsvegar kappi sem maður hefur minna heyrt um, ég veit að hann er tengdur Guided by voices sem er hljómsveit sem mér líkar svosem ekkert sérlega vel við en hvað um það þá eru þeir Will Oldham og Matt alveg frábærir saman og söngur þeirra saman með því betra sem maður heyrir. Platan sem þeir kappar senda frá sér á næstunni heitir einfaldlega Superwolf og er alveg frábær í alla staði.
Ég mæli eiginlega bara með öllum lögunum en svona til að pikka út einhver sérstök ætla ég að benda ykkur á 'Beast for thee', 'Lift us up' og 'I gave you'.

SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. Ragnar Freyr skrifaði þann 17. december kl. 20:00

    Fékk þennan óvænt í síðustu viku! Briiiillliant diskur! Sammála þér með lögin.

  2. Leifurr skrifaði þann 18. december kl. 16:54

    meiriháttar diskur. varð til þess að ég ákvað að hlusta á gömlu diskana hans og er gjörsamlega að missa mig úr gleði.

  3. kirk skrifaði þann 19. december kl. 18:24

    Þú ert yndið Hjalti.... you go girl

  4. Hörður skrifaði þann 19. december kl. 22:31

    vá.. Ég ætla að eignast börn með Will oldham mmm

  5. Traustinn skrifaði þann 29. december kl. 17:12

    Hvenær kemur árslistinn frá Hjalta? Það er nógur tími til að skrifa hann í fríinu á Akureyri :)

  6. Bergþóra skrifaði þann 29. december kl. 17:29

    Nú er ég glöð Hjalti minn, þetta er algjörlega frábær diskur. Will Oldham treður sér bara ofar á uppáhaldskallalistann minn með þessari plötu og textarnir klikka heldur aldrei hjá honum.. þarf alltaf að hlusta nokkrum sinnum til að athuga hvort ég hafi virkilega heyrt rétt.

  7. Helga Sjöfn skrifaði þann 6. january kl. 01:42

    Er nýlega búin að uppgötva Bonnie 'Prince' og er búin að vera að hlusta á Master and everyone, sem er ein uppáhalds platan mín þessa dagana. Hlakka til að hlusta á þessa... tusind tak

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.