HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

12.02.2005 23:20 | TÓNLIST

NÝTT EFNI

Ég hef ekki verið að hlusta á margt nýtt undanfarið. Ég fekk nýju Decemberists plötuna og hef verið að hlusta á hana. Hún er bara nokkuð góð þó svo að ég kunni betur við eldri plötur. Svo var Árni Zúri að benda á plötu með manni sem kallar sig Micah P. Hinson. Það er alveg frábært efni sem ég mæli hiklaust með fyrir alla sem fíla Devendra Banhart, Will Oldham og fleira í þeim dúr.
Annars er voða lítið að frétta, ég hef ætlað að skrifa um eitthvað ferskt en hef ekki rekist á neitt ennþá svo að þetta verður að duga í bili.
Annars var ég að setja inn nokkrar nýjar myndir sem þið getið séð hér

SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. Anna Sigga skrifaði þann 12. february kl. 23:26

    Micah P. Hinson er algjört æði! Frekar sátt með hann... myndirnar eru líka æðislegar! =)

  2. Helgi Vilberg skrifaði þann 13. february kl. 12:44

    Nýja Decemberists platan er frábær og sýnir nýjar hliðar á þessari hljómsveit. Ótrúlegt hvað þau geta gert.

  3. karen skrifaði þann 14. february kl. 12:35

    decemberists er frábær:)

  4. Elmar Geir skrifaði þann 15. february kl. 11:12

    Nýja Decemberists platan er frábær. Þessi Micah gaur er líka helvíti magnaður!

  5. Ragnar Freyr skrifaði þann 17. february kl. 01:11

    Grúví like a movie!

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.