07.03.2005 14:47 | ALMENNT
HVAÐ ERU ÞIÐ AÐ HLUSTA Á?
Jæja, núna ættu allir að vera búnir að hlusta á Micah P, Emilíönu Torrinni og Decemberists og auðvitað búnir að kaupa sér miða á Hot Chip.Það sem er svona mest í tækinu hjá mér þessa dagana er Sparklehorse. Mér finnst þetta band alveg æðislegt, hæfileg blanda af rokki og rólegu fyrir minn smekk. Þeir hafa gefið út þrjár plötur (sú nýjasta frá 2001) sem mér finnst allar mjög sambærilegar og erfitt að gera upp á milli þeirra. Ef að ég ætti að mæla með einhverri einni held ég að það yrði Good Morning Spider.
Annars langar mig að spyrja í lokin, hvað eru þið að hlusta á?
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.


SVÖR FRÁ LESENDUM
Bergen skrifaði þann 7. march kl. 15:09
Ég hef mikið verið að hlusta á nýju Queens Of The Stone Age plötuna, sem ber nafnið "Lullabies to Paralyze", og einnig "Guero" með Beck, sem er ósköp hress einnig. Svo er Bloc Party ennþá mjög mikið í spilaranum hjá mér, enda þvílík massív snilldarplata að það hálfa væri meira en nóg. Svo hef ég verið að smella soundtrackinu úr "Garden State" í reglulega, slatti af lögum sem ég átti áður eins og Iron & Wine með "Such great heights" og fleira gott, en platan er mjög fín í heild sinni. Zach Braff er nettur gæji.
Svo hef ég aðeins verið að skoða The Killers, allt í lagi, og svo hlustað á Moving Pictures með Rush.
Og já, kominn með miða á Hot Chip! :D
Hö skrifaði þann 7. march kl. 23:34
æ ég er eiginlega ekkert búinn að fá neitt nýtt.... hlusta bara á Joanna Newsom og svo var ég að hlusta á Pavement diska í bílnum...
ég á líka miða á hot chip!!!! veiiiiii
Kirk skrifaði þann 8. march kl. 00:13
ég á enga miða á Hot Chip, en í dag er ég að hlusta á allt, var að fá iPod og er að synca þetta allt saman í dúlleri, það sem er í gangi núna er Tigermilk með B&S og næst á listanum gamalt stuff með Emiliana Torrini... and the list goes on
karen skrifaði þann 8. march kl. 22:13
Ég er að hlusta á sparklehorse (gott mix by hjalti) og líkar það vel, svo decemberists, þ.e.a.s. her majesty og cutouts and castaways... voða jolly, nú og svo er Damien Rice.
Enginn hot chip miði.
Ragnar Freyr skrifaði þann 9. march kl. 00:36
Hjá mér hefur það verið The Blow og Shearwater fyrir utan snilldina hann Micah.
Já og ég á Hot Chip miða. Vei vei! Munaði reyndar litlu um daginn að ég ætti engan því ég týndi þeim í smá tíma og þar á meðal þínum Hjalti. En no worries, fann þá aftur!
Traustinn skrifaði þann 9. march kl. 12:43
Ég er mest að hlusta á Antics með Interpol og nýenduruppgötvaðan 12 með The Notwist.
Hjalti skrifaði þann 9. march kl. 14:51
Já 12 með Notwist er góð. Hlusta oft á hana í vinnunni þar sem við erum með alla Notwist diskana á jukeboxinu.
Andrea skrifaði þann 9. march kl. 20:40
Má til með að svara þessu Hjalti minn því ég er alveg hooked á Silverchair þessa dagana. Fór fyrir algjöra tilviljun að hlusta á þá aftur og féll svona kylliflöt fyrir þessu...dauðsá eftir að hafa ekki gefið þeim meiri séns á sínum tíma! Ef einhver gerði slíkt hið sama mæli ég eindreigið með því að dusta allavegana rykið af Frogstomp og Diorama! Úr því að ég er síðan að tjá mig á annað borð mæli ég að sjálfsögðu alltaf með Teenage fanclub við þá sem kunna gott að meta!
hjalti skrifaði þann 9. march kl. 22:55
Hah, ég hlustaði nú einhvertíman á Silverchair þegar ég var unglingur :)
hjalti skrifaði þann 10. march kl. 18:07
Já svo hef ég reyndar aðeins verið að hlusta á soundtrackið úr Motorcycle Diaries, það er mjög flott og líka soundtrackið úr Life Aquatic.
hjalti skrifaði þann 10. march kl. 21:12
ég hef svo gaman að svona monolog! núna er ég að hlusta á Adam Green sem Siggi minn lét mig hafa.. þetta er þrusu smooth! Takk Siggi!
hö skrifaði þann 10. march kl. 21:17
Adam Green er æði, hann var í moldy peaches með kymiu Dawson, hef ég ekki látið þig fá Moldy peaches plötuna?
Bragi í Köben fór annars á Adam Green tónleika í gær, asninn! grrr... en hann sér ekki Hot Chip á morgun!!! :D veiiiiii
hjalti skrifaði þann 10. march kl. 21:19
Jú ég hef hlustað á Moldy Peaces mar :D
Vei Hot Chip verða bestir!!
hö skrifaði þann 10. march kl. 21:19
Annars er life aquatic soundtrackið best í heimi, sérstaklega Ping island lagið... og vá hvað það er góð mynd :)
Hjalti skrifaði þann 10. march kl. 21:20
Já hress þessi sem er að taka Bowie lögin maður!
Bowie er nottlega bestur!
Egill skrifaði þann 13. march kl. 19:56
er að hlusta á Converge og Ratatat þessa dagana.. bæði mjög hress bönd.. og svo var ég að grafa upp Curtains með Tindersticks sem ég hef ekki hlustað á heillengi.. alveg mjög flott plata :)
Frank skrifaði þann 13. march kl. 23:22
Emiliana Torrini núna, er líka að prófa Decemberists
TIL BAKA
SENDU ÞITT SVAR
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.