13.03.2005 19:41 | ALMENNT
LOU BARLOW - EMOH
Vonandi allir búnir að jafna sig eftir frábæra tónleika Hot Chip. Ég verð þó að viðurkenna að
mér þótti fyrri tónleikarnir betri og skemmtilegri áhorfendur. Sýndist sumir vera að villast eitthvað þarna og vildu gera fátt annað en að hoppa á næsta mann og láta eins íslendingar eru vanir á rokktónleikum.Lagavalið var gott og við fengum að heyra nokkur ný og fersk lög, eina sem var að angra mig var að soundið var ekkert sérstakt og oft var eins og vocalið dytti alveg út þegar mestu lætin voru. Ég get kannski kennt sjálfum mér um að troðast svona framarlega og hefði betur staðið nær miðju en frábært engu að síður.
Núna er ég að hlusta á ágæta plötu með Lou Barlow. Þetta er sennilega í svona svipuðum stíl og Iron and wine, Elliott Smith og það allt ef maður á að flokka þessa tónlist svona mjög gróflega. Þessi plata kom út nú á þessu ári og nefnist Emoh. Ég hafði heyrt eitthvað á hana minnst en ekki gefið mér tíma í hana. Ég ætla vera frekar djarfur og pósta einu lagi af henni hér :)
Njótið!
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.


SVÖR FRÁ LESENDUM
Frank skrifaði þann 14. march kl. 10:54
Lou Barlow er æði, takk fyrir þetta
karen skrifaði þann 14. march kl. 13:24
namminamm ég bíð spennt eftir næsta
TIL BAKA
SENDU ÞITT SVAR
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.