HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

14.03.2005 09:26 | TÓNLIST

JASON ANDERSON

WreathVonandi eru allir jafn tónlistarþyrstir og ég þessa dagan. Ég ætla ekkert að vera að draga það að kynna meira gott efni. Núna ætla ég að benda ykkur á kappa sem heitir Jason Anderson. Hann gaf nýlega út plötuna Wreath sem er hans önnur plata (hef því miður ekki heyrt þá fyrri). Þetta er bara hörku fínt hjá stráknum og svona í svipuðum stíl og allt annað sem ég hef verið að skrifa um. Kannski ég ætti að fara að skrifa um einhverja aðra stefnu en þetta rólega indie. Allavega þá er hann með nokkuð skemmtileg lög og fær stelpu með sé til að syngja í sumum lögum sem gefa þeim skemmtilegri fíling. Allir að tjékka á þessu.


Ps. Eins gott að ég fái fídbakk annars nennir maður ekki að vera svona duglegur :)

SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. Hjalti skrifaði þann 14. march kl. 11:14

    Bjössa finnst ég of væminn! Ég ætla að pósta einhverju hardcore stuffi næst!!! Look out bjössi!

  2. bjössi skrifaði þann 14. march kl. 12:07

    hehe neiii ég sagði ekki að ÞÚ værir væminn, bara að lou barlow lagið væri pínkupínku væmið fyrir minn smekk. hlakka til að heyra thrash metal lagið sem þú setur upp næst :)

    þetta er mjög næs stöff, jason anderson líka. vá ég var næstum því búinn að jason alexander þarna. er kannski búinn að horfa á seinfeld of oft.

  3. Hjalti skrifaði þann 14. march kl. 12:08

    Já á ég ekki bara að taka næsta Jason næst. Heh.. get skrifað um Jason Molina :)

  4. karen skrifaði þann 14. march kl. 13:45

    Mér finnst þetta fínt, haltu áfram:)

  5. Ragnar Freyr skrifaði þann 14. march kl. 17:55

    Búinn að hlusta á Jason svona þrisvar. Er að sökkva inn. Líst mjög vel á þetta svona til að byrja með. Haltu áfram að vera væminn Hjalti, það fer þér svo vel.

  6. hö skrifaði þann 17. march kl. 13:41

    áttu enga Hollenska sekkjapíputónlist, ég las það nefnilega á netinu að það væri nýja kúlið

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.