HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

17.03.2005 14:01 | ALMENNT

THE BLOOD BROTHERS

Ég lofaði Bjössa einhverju svaka hörðu indie! Hérna er eitthvað alveg geðveikt hresst sem pitchforkmönnum finnst svaka töff og æðislegt en mér finnst alveg hræðilegt.
Ég verð samt að vera kúl og harður og setja inn eins og eitt lag fyrir Bjössann minn.
Jæja Bjössi, öskraðu með!!!


Ps. Svaka hart nafn á bandi maður!

SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. bjössi skrifaði þann 17. march kl. 14:10

    hjalti, nú er ég hræddur við þig.

  2. Hjalti skrifaði þann 17. march kl. 14:17

    Æj, já vona að fólk sé ekki að sækja þetta. Alveg skelfilegt dót, pitchforkmenn eru auðvitað snarrebil að gefa þessu 9.1

  3. bergen skrifaði þann 18. march kl. 02:06

    Þröngsýnu kjánalingar! Þó að það sé alveg kúl að fíla indie og allt það þá er heilaskemmandi að hlusta ekki á neitt annað!

    Verð að segja að ég er bara mjög hrifinn af þessu, virkilega gott Hardcore Punk. Frumlegt og ógnandi en samt grípandi. Hjalti, ef þér finnst þetta bad útaf því að það er smá harka í þessu, grow some balls! :P

    Náði í alla plötuna og er bara mjög hrifinn.

  4. hjalti skrifaði þann 18. march kl. 12:18

    Haha.. gott að einhver græddi á þessu lélega gríni hjá mér :)

  5. Frank skrifaði þann 18. march kl. 13:58

    já láttu þér vaxa pung!

  6. Ragnar Freyr skrifaði þann 18. march kl. 23:47

    Hahha... Held ég sleppi því að ná mér í þetta stöff! Ég er þunglyndisgaur með innvaxinn pung!

  7. Bergen skrifaði þann 19. march kl. 04:14

    Hah! Nú er ég kominn með myndarlegt safn af blood brothers, einar 5 plötur, þetta er algjör snilld! =)

  8. Traustinn skrifaði þann 19. march kl. 12:18

    Nei, þetta er ekki gott.

  9. aui skrifaði þann 4. june kl. 13:38

    flott

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.