HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

18.03.2005 20:59 | TÓNLIST

JASON MOLINA / SONGS: OHIA / MAGNOLIA ELECTRIC CO

Fyrst að ég var að skrifa um Jason Anderson fannst mér vel við hæfi að skrifa um næsta Jason í röðinni. Jason Molina er kappi sem hefur oftast verið þekktur undir nafninu Songs: Jason MolinaOhia. Hann hefur gefið út margar plötur og síðast Magnolia Electric Co sem er mjög fín plata. Hann hefur einni gefið út plötu undir sínu eigin nafni sem nefnist Pyramid Electric Co og er frekar hrá og laus við allt nema bara gítar og raul, einnig fín plata.
Ég held að það sé óhætt að líkja honum við Will Oldham og því sem ég kemst næst hafa þeir allvegana gert einhver lög saman. Það er einmitt oft svona country-fílingur í lögunum hjá Molina.
Það sem ég ætlaði hinsvegar að skrifa um er að núna hefur hann hætt að semja sem Songs: Ohia og búinn að stofna nýtt band sem hetir Magnolia Electric Co (jább sama og síðasta platan hans) og er búinn að fá með sér slatta af reyndu fólki. Þau gáfu út eina live plötu og eru svo að gefa út nýja sem heitir What Comes After The Blues. Eins og svo oft áður er þessi plata nú þegar lekin út svo að ég er búinn að krækja í hana og renna henni í gegn. Við fyrstu hlustun virðist þetta vera frekar lítil breyting frá Songs: Ohio en ég á þó eftir að melta þetta betur. Ég ætla að demba á ykkur tveimur lögum svona til að gefa ykkur nasasjón af þessu.
Annars er helst í fréttum að snillingurinn Devendra Banhart er að fara gefa út plötu ásam nokkrum öðrum listamönnum en mun hann eiga fimm ný lög á þessari plötu sem er væntanleg í maí. Hlakka til að heyra það!



SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. Ragnar Freyr skrifaði þann 19. march kl. 00:09

    Mmmmm... gott stuff! The Night Shift Lullaby er snilld! Alveg up my dark, misty and considerably smelly alley! Hjalti, þú ert maðurinn!

  2. Ragnar Freyr skrifaði þann 19. march kl. 11:38

    Búinn að hlusta á þetta lag 3svar í dag. Það er sjaldan sem það gerist að ég fíli lag svona mikið strax við fyrstu hlustun. :)

  3. Traustinn skrifaði þann 19. march kl. 12:12

    Ahhh, Songs: Ohio, einhverntíman uppgötvuðum við Emmi þetta. Æði.

  4. Birkir skrifaði þann 19. march kl. 15:14

    Farðu nú að slökkva á tölvunni og ipodinum og fara út og mynda... býð eftir því að fá svona nýtt albúm 2 daga í röð

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.