HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

21.03.2005 09:19 | ALMENNT

FABCHANNEL.COM

Þvílík gullnáma sem á fann áðan! Á þessari síðu eru upptökur af tónleikum (mynd/hljóð) með mörgum frábærum böndum. Þar má helst nefna Low, The Arcade Fire, Damien Rice, Azure Ray, Bright Eyes, Do Make Say think, Halifax Pier og Sonic Youth. Þetta er allt saman í fínum gæðum og streymir afar vel sérstaklega ef maður þarf ekki að borga fyrir erlent niðurhald. Einnig má þarna horfa á tónleika með Emiliönu Torrini í kvöld (s.s. bein útsending).
Þvílík hamingja!



SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. Frank skrifaði þann 21. march kl. 09:22

    fáráðlingar með hjálma! Þarf að kíkja á tónleikana í kvöld

  2. siggi siggi siggi eggertsson skrifaði þann 21. march kl. 21:05

    vei, torrini er hress!

  3. Helgi Vilberg Helgason skrifaði þann 28. march kl. 18:25

    Þessi síða er frábær. Ég smellti mér beint á upptöku af Damien Rice og er að drepast úr gæsahúð!

  4. Siggi Ekkertsson skrifaði þann 29. march kl. 17:09

    já, skemmtileg síða.
    paradiso er semsagt klúbbur í amsterdam, og þegar krakkarnir sem eru með mér í bekk voru þar ætluðu þau á tónleika með bravery þar, en það var uppselt. þau geta bara horft á tónleikana þarna. sniðugt.
    annars veit ég ekki með bravery, finnst þeir ekkert spes.

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.