16.04.2005 21:26 | TÓNLIST
HORSES IN THE SKY
Ég er núna þessa dagana að renna í gegn nýju plötunni frá Silver Mount Zion. Þar sem Efrim
úr Godspeed You! Black Emperor er fremstur í flokki. Þau gáfu út plötu í fyrra sem mér líkaði ekkert sérlega vel við en plöturnar á undan voru mjög góðar svo að ég hafði ekki gefið upp alla von ennþá.Vandamálið er reyndar að ég hef alltaf átt erfitt með að fíla sönginn hjá Efrim, röddin er mjög veik og virkar oft fölsk og maður á hálf erfitt með að hlusta á hann lengi.
Horses in the sky er þó talsvert mikið betri en plata síðasta árs (This is our punk rock) en engu að síður koma kaflar þar sem Efrim gerir mig brjálaðann með skrýtnu vocali.
Ég ætla þó ekki að gefast upp og ég er farinn að fíla svona eins og hálfa plötuna og held að afgangurinn gæti komið ef ég gef henni meiri séns.
Ég set inn tvö dæmi hérna til að þið áttið ykkur á þessu betur, annars er maður hálf skyldugur að tjékka á þessu þar sem Gybe er jú með betri böndum síðasta áratugs.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.


SVÖR FRÁ LESENDUM
Helgi Vilberg Helgason skrifaði þann 1. may kl. 20:21
I like it.
hjalti skrifaði þann 3. may kl. 21:51
Greinilega fáir sem voru að fíla þesa plötu.
Kannski ég pósti einhverju meira "meinstrím" næst =)
TIL BAKA
SENDU ÞITT SVAR
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.