HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

17.04.2005 19:38 | LJÓSMYNDUN

MYNDIR FRÁ AIRWAVES

Mér leiddist aðeins í prófalestri og setti inn myndirnar frá Airwaves. Ég hefði nú átt að vera búinn að setja þetta inn fyrir löngu en var búinn að gleyma þessum myndum en fann þær þegar ég fór að gramsa í dóti núna áðan. Vonandi nennir einhver að skoða þetta allt :)



SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. hjalti skrifaði þann 17. april kl. 19:56

    Varla að ég nenni að skoða í gegnum þetta.. búinn að fá svo mikið ógeð á svona tónleikamyndum.. gubb gubb

  2. Ragnar Freyr skrifaði þann 17. april kl. 20:56

    Fínar myndir hjá þér minn knái drengur. Djöfull langar mig á aðra Adem tónleika. Fannst þeir æði.

  3. Anna Sigga skrifaði þann 20. april kl. 20:11

    Fínt hjá þér kúturinn minn eins og alltaf, þó tónleikamyndir séu ekki endilega skemmtilegastar.. =)

  4. hjalti skrifaði þann 20. april kl. 22:26

    Hehe, þú ert auðvitað að bíða eftir að ég setji fleiri myndir af þér inn.. sjálfselska....

  5. Anna Sigga skrifaði þann 20. april kl. 22:30

    Hey - rólegur þarna =) þú varst líka alveg æstur þegar ég tók myndir af þér - sem voru by the way alls ekki slæmar ;) svo ekkert sjálfselskutal hérna - right back at you!

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.