16.06.2005 12:55 | TÓNLIST
Í SPILARANUM...
Þá er maður kominn heim, reyndar rúm vika síðan en hvað um það. Það var frekar magnað í útlöndum og gaman að hitta Sigga og Jóhönnu og co. Eignaðist nýja fína myndavél en var samt aðeins of latur að mynda.Annars er voða lítið að frétta nema maður er kominn í þessa venjulegu sumarrútínuna.
Það sem ég hef verið að hlusta á þessa dagana er nýja efnið frá Billy Corgan, Say Hi To Your Mom, Royksopp og Architecture In Helsinki.
Svona svo ég renni yfir þetta þá er nýja dótið hans Billy Corgan ekkert sérstakt, þetta svipar aðeins til Adore en er þó ekki nálægt því jafn gott, gæti verið b-side af b-side af Adore sem er búið að pródúsera of mikið. Þarna inn á milli eru svosem ágætis lög en ekkert mikið meira en það.
Royksopp og Say Hi To Your Mom eru með fínar plötur en skemmtilegast finnst mér þó nýja platan með Architecture In Helskinki, In Case We Die. Hún er eiginlega bara alveg frábær, skemmtilega súr inn á milli en missir sig samt aldrei í vitleysu. Talsvert öðruvísi en fyrri platan, sem heitir Fingers Crossed, og mjög gaman að sjá að þau eru ekki bara að framleiða meira af sama efni heldur leika sér og þora að breyta til. Þar höfum við það!
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.


SVÖR FRÁ LESENDUM
Anna Sigga skrifaði þann 16. june kl. 13:05
Þú ert bara búinn að setja inn frá Montreal - Mig langar að sjá myndir frá New York :)
Ragnar Freyr skrifaði þann 16. june kl. 20:47
Velkominn heim drengur!
Já Architecture in Helsinki diskarnir eru búnir að vera á repeat hjá mér í þónokkurn tíma. Ragnheiður kallar þetta söngleikjatónlist en ég fussa bara á það! ;) hehe.
Annars mæli ég með nýja Turin Breaks disknum. Alveg brilliant. Soldið poppaður á köflum en það kemur ekki að sök. Fishing for a dream er yndislegt lag.
Frank... skrifaði þann 23. june kl. 17:03
úff þetta var nú slappa lagið á marvin áðan...
TIL BAKA
SENDU ÞITT SVAR
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.