HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

09.08.2005 22:15 | ALMENNT

DULARFULLI VINURINN

Þeir sem lásu færsluna hér fyrir neðan sáu að ég á einhvern dularfullan vin sem sendi mér disk með Jack Johnson. Ég verð að viðurkenna að ég var ekki alveg jafn hissa þegar ég rak augun í nýtt umslag í pósthrúgunni í dag. Var ekki lengi að sjá að þarna var greinilega sama rithönd á ferðinni. Ég flýtti mér því ekki eins mikið upp til að gá hvað þetta væri eins og síðast og rölti niður og tók þvottinn af snúrinni fyrst.
Þegar ég kom upp og setti diskinn í heyrði ég að þetta var sami kappi, Jack Johnson, en önnur plata með honum. Frumlegt? Haa.. nei ekkert sérstaklega. Verð að játa að ég varð fyrir frekar miklum vonbrigðum með þennan annars ágæta nýja vin minn.

SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. Björgvin Friðgeirsson skrifaði þann 9. august kl. 22:49

    vanþakkláti bjáni! :P

  2. Hjalti skrifaði þann 10. august kl. 00:14

    Hehe, kannski fæ ég mailbomb næst :)

  3. karen skrifaði þann 10. august kl. 04:41

    samt spennandi að vita hver mr mysterious one er! hiö minnsta eg myndi vera :) :)

  4. Díana skrifaði þann 10. august kl. 11:12

    Ég er bara ánægð meðan það verður ekki ráðist á mig og ég sökuð um þetta aftur.

  5. Hjalti skrifaði þann 10. august kl. 12:53

    híhí

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.