HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

25.08.2005 23:38 | TÓNLIST

NOKKRAR SKEMMTILEGAR PLÖTUR..

Það hafa nokkrar skemmtilegar poppplötur komið út á þessu ári. Fyrst má sennilega nefna Stars - Set Yourself on FireIn Case We Die með Architecture In Helsinki, svo kom þessi fína plata frá bandi sem kallar sig Magic Numbers og nú er að koma ný plata frá Stars. Þetta eru allt mjög góðar plötur og síðustu vikur hef ég verið að hlusta á Magic Numbers sem er þrusu hresst band sem kom mér á óvart. Það er kannski óþarfi að skrifa mikið um þau þar sem annar hver maður virðist vera búinn að því en lögin þeirra eru skemmtilega uppbyggð og taka oft aðra stefnu í lokin. Annað en týpísk verse-chorus-verse popplög.
Svo er það platan frá Stars sem heitir Set Yourself on Fire, þetta er mjög þægilegt og sykrað popp sem þarf ekki mikla hlustun og síast inn strax. Kannski ekkert það frumlegasta í heimi en það er líka bara ágætt. Fyrir þá sem vita ekkert hvaða band þetta er þá má kannski líkja þessu við Camera Obscura og ef fólk veit ekki hvaða band það er heldur þá er kannski hægt að líkja þessu mjög gróflega við Belle & Sebastian.

Hérna er svo fínt lag handa ykkur með skemmtilegum texta.


SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. karen skrifaði þann 25. august kl. 23:49

    popp popp flott lag

  2. hjalti skrifaði þann 25. august kl. 23:55

    Já ég gleymdi að nefna að ég var að fá nýju Magnet plötuna. Er bara búinn að renna mjög hratt yfir hana og finnst hún svona í væmnari kantinum. Kem kannski með blog um hana á næstu dögum.

  3. Krilli skrifaði þann 26. august kl. 00:00

    Namm, lag.

  4. addi skrifaði þann 26. august kl. 00:17

    meika ekki magic numbers, hlusta bara á fallegt fólk.

  5. Arnar, a.k.a Bruce. a.k.a. úlpan. skrifaði þann 29. august kl. 20:28

    Ef þú þekkir hann ekki nú þegar, tékkaðu þá á gaur sem heitir Daniel Johnston, mæli með lagi sem heitir Speedy motorcycle. sem hann söng í gegnum síma í útvarpsþátt hostaðan af bandinu Yo La Tengo. Hann er eitthvað þroskaheftur en er að gera snilldar indie músik, alla vega það sem ég hef heyrt.

  6. Hjalti skrifaði þann 29. august kl. 21:00

    Kúl! Tjékka á því.

  7. Anna Sigga skrifaði þann 18. september kl. 20:10

    Vá þetta lag er ekkert smá töff!

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.