HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

31.08.2005 23:25 | TÓNLIST

BELL ORCHESTRE

Ég veit ekki hvort ég er eitthvað eftirá en ég var að næla mér í plötu með bandi sem kallast Bell Orchestre. Band frá Montreal sem ætti að segja ýmislegt. Veit ekki hvað í Bell Orchestre - Recording A Tape the Colour of the Lightósköpunum er að gerast þarna í Montreal en það virðist endalaust af góðu efni koma þaðan. Svo þegar ég kíkti þarna í vor þá var ekki ein einasta af þessum sveitum að spila, fuss.. en nóg um það.
Það sem vakti sennilega fyrst áhuga minn á þessu bandi var að Richard Parry, nördalegi bassaleikarinn í Arcade Fire, er einmitt líka í þessari sveit. Platan nefnist Recording A Tape the Colour of the Light og er ekki beint það sem ég átti von á. Ég held að ég verði að fullyrða að þetta er bara eitt besta póstrokk sem ég hef heyrt frá því Lift Your Skinny Fists með Godspeed You Black Emperor! kom út.
Svona ef ég reyni að lýsa þessu þá er þetta instrumental rokk oft með hröðum takti, svakalegum strengjum og ótrúlega kraftmikið. Þetta getur svo dottið niður í rólega og þægilega kafla og er sennilega mun glaðlegra en flest rokk af þessari tegund. Stundum verður þetta jafnvel svolítið jazzað og skemmtilegt. Lagið The Upwards March gæti alveg verið lag með Gybe og ætti það að segja allt sem segja þarf! Því segi bara húrra fyrir Bell Orchestre sem kemur með þessa frábæru plötu þegar ég var búinn að afskrifa póstrokkið.... í bili.

Ég læt hérna fylgja með tvö lög. Fyrr lagið kom út á EP sem seldur var á tónleikum með bandinu. Á plötunni sjálfri er þetta lag svo í tveimur hlutum en það er samt nauðsynlegt að hlusta á báða hlutana svo ég læt frekar EP-útgáfuna fylgja. Seinna lagið er svo af sjálfri plötunni og ætti að gefa ágætis mynd af henni.



SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. Bergen skrifaði þann 1. september kl. 00:30

    Ú ú ú ú ég er spenntur að heyra þetta æðisæði!

  2. Ævar skrifaði þann 3. september kl. 04:12

    Helvíti fínt stuff bara. 'nuff said :)

  3. Daði skrifaði þann 3. september kl. 09:35

    Já, þetta er þrusugott. Ég hugsaði einmitt líka um Kanada þegar ég heyrði þetta. Mynnir mig á Do Make Say Think á köflum.

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.