28.09.2005 03:19 | ALMENNT
PERSÓNULEGA BLOGGIÐ - PT. I
Það hlaut að koma að því, ég er fórnarlamb nýjasta bloggæðisins sem kallast að klukka. Ef maður er klukkaður þarf maður að segja frá fimm litið þekktum staðreyndum um sjálfan sig.Hér kemur það.
- Ég er með rosalega blóðfóbíu og þá meina ég alveg svakalega. Þegar ég var yngri orgaði ég og veinaði ef ég svo mikið sem sá blóð. Skipti engu þótt það væri einhver allt annar en ég sem hafði meitt sig. Ég hef ekki lagast mikið því um daginn skar mig þannig að það fossblæddi úr fingrinum á mér og ég get svarið að það leið næstum yfir mig.
- Ég var einu sinni ljóshærður, alveg satt. Þetta var á þeim tíma sem ég fór rosalega oft í klippingu og var stundum með einhverjar strípur og fínerí. Eitt skiptið klúðraði klipparinn minn þessu svona svakalega og ég endaði nánast alveg ljóshærður. Ég myndi gefa mikið fyrir ljósmynd af mér frá þessum tíma.
- Ég á örugglega fleiri bjútíprodökt en allir vinir mínir til samans og ég er mjög sérvitur á bæði sápur og sjampó.
- Ég var einu sinni með rosalega hommafóbíu og stelpurnar (Díana eða Karen) höfðu sérstaklega gaman að því að stríða mér. Núna á ég marga vini sem eru hommar og held að ég sé með minni fóbíu en flestir sem ég þekki.
- Ég get ekki horft á kjánaleg atriði í bíómyndum eða sjónvarpsþáttum. Þetta eru svona hlutir sem láta mig fá kjánahroll og mér líður mjög vandræðalega. Stundum reyni ég að spóla yfir svona atriði eða set á pásu og fer að gera annað áður en ég get klárað að horfa.
Ég held að þetta séu mín fimm atriði og mig grunar að reglan segi að ég eigi að klukka fimm aðra. Ég held að ég láti það samt ógert.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.


SVÖR FRÁ LESENDUM
Karen skrifaði þann 28. september kl. 11:17
detti mér allar dauðar lýs.... úr höfði
ég vissi ekki að þú tækir þátt í svona vitleysu
en mjög svo skemmtileg lesning
Ætli við getum ekki reddað eins og einni mynd af þér með ljósar strípur?
kveðja karen
Díana skrifaði þann 28. september kl. 11:20
Skemmtilegar staðreyndir, en ég innilega man ekki eftir þér ljóshærðum. Hvenær var þetta.
hjalti skrifaði þann 28. september kl. 15:05
heh, ég gleymdi samt einni skemmtilegri staðreynd.
Ég er nefnilega með ör á rassinum. Þegar ég var lítill í einhverju afmæli þá settist ég á einhverjar festingar fyrir ofn (húsið var óklárað) og það þurfti að sauma 4 spor í rassinn á mér. Rosalega töff skoooo.
Frank skrifaði þann 28. september kl. 15:21
já úff hvað þú átt mikið af kremum og drasli, ég held alltaf að ég sé kominn í apótek þegar ég fer á klósettið hjá þér...
Bjarki skrifaði þann 28. september kl. 15:23
Þetta er sennilega síðasti staðurinn sem ég hefði búist við þessu klukkæði á... En gaman af þessu, ég deili síðasta punktinum með þér, öfgakenndum kjánahrolli.
Díana skrifaði þann 28. september kl. 18:08
Hehe hefðir átt að láta örið á rassinum fara með. hehe, svo sannalega staðreynd sem maður vissi ekki.
Anna Sigga skrifaði þann 28. september kl. 23:12
Flestum grunar mjög líklega heldur ekki að þú varst í eina tíð ægilegur skoppari sem var á hjólabretti.. =)
hjalti skrifaði þann 28. september kl. 23:16
Ef fólk hefði séð hjólabrettataktana heima hjá Adda í sumar þá myndu allir trúa að ég hefði verið rosalegasti skopparinn.
Anna Sigga skrifaði þann 28. september kl. 23:18
Ég sá hjólabrettataktana hjá þér fyrir norðan í vetur og það var nú ekkert til að hrópa húrra fyrir ;) náðir að slasa þig í "ollinu" =)
bergen skrifaði þann 29. september kl. 00:41
Þess má líka geta að Hjalti heldur að Pravda sé íþróttahús og mætir þessvegna þangað í rauðum adidas skóm!
Birkir skrifaði þann 30. september kl. 20:30
Held að þetta sé fyrirboði að einhverju virkasta bloggi landsins, nú er stíflan brostin.
padre skrifaði þann 1. october kl. 15:00
ég er svo feitt með þetta atriði að meika ekki að horfa á vendræðaleg atriði í bíómyndum eða eitthvað annað, eins og td: get ég ekki horft á faldar myndavélar, þótt að lífið lægi við.
hjalti skrifaði þann 1. october kl. 18:18
hah einmitt! ég meika ekki svona faldar myndavélar heldur.
Hørdur skrifaði þann 5. october kl. 08:44
rass, thu ættir bara ad blogga um svona personulegt, gætir gratid yfir sorgum lifsins herna a blogginu, og svo get eg hlegid yfir dvi herna i dk, væri dad ekki gaman :)
sjaumst eftir 14 daga vuuuuhuuuu!
Sveinn skrifaði þann 5. october kl. 11:42
Eg hata vandraedaleg moment hvort sem thad er i biomyndum eda ekki, eg finn alltaf til med theim vandraedalegu og verd vandraedalegur sjalfur.
JJ skrifaði þann 7. october kl. 21:44
Hahaha! Vissi 3 atriði af 5, man ekki eftir ljósu strípunum og vissi ekki þetta með hommafóbíuna en oft hef ég nú öskrað úr hlátri yfir blóðfóbíunni og rassasárinu... annað sem hefði verið vert að nefna eru óráðin og körfuboltaáráttan...og gleymi því aldrei þegar það leið næstum yfir þig að sjá kind bera... múhahahahaha
Davíð Alexander skrifaði þann 10. october kl. 14:15
deili með þér blóðfóbíu, ómeðvitaðari þó (verð t.d. ekkert stressaður þegar ég er á leiðinni í sprautu/blóðprufu eða eitthvað, en þegar ég sé blóðið renna úr handleggnum á mér verð ég fyrst alveg skjannahvítur, varirnar og allt og svo grænn og svimar svo mikið ég get ekki gengið).
Svo líka atriði 5, aldeilis.
kip skrifaði þann 11. october kl. 18:56
Wow! nr. 5! Ég er loksins búinn að finna sálufélaga :D Nei svona í alvöru, það er stundum ekki hægt að horfa á vandræðaleg dæmi í myndum, manni finnst það svo óþægilegt að maður getur bara ekki horft. Kjánahrollur, snilldar orð hjá þér, ætla nota það.
Rúnar skrifaði þann 12. october kl. 21:58
þú átt að vera með KJÁNAHROLLINN, fyrst þú varst að fá OC complete hjá mér, þú hýri drengur
TIL BAKA
SENDU ÞITT SVAR
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.