HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

21.11.2005 01:39 | TÓNLIST

UPPÁHALDS HLJÓMSVEITIR

Ég hef svona aðeins verið að velta þessu fyrir mér. Þær hljómsveitir sem ég kalla uppáhalds hljómsveitirnar mínar eru oft gamlar og einhverjar sem ég hef hlustað á rosalega lengi. Hugsanlega þær hljómvseitir sem ég byrjaði fyrst að finnast merkilegri en aðrar. Þetta eru líka þær hljómsveitir sem ég hlusta hvað minnst á. Ef einhver spyr mig hvaða hljómsveitir eru uppáhalds er ég frekar fljótur að svara; Smashing Pumpkins, Pink Floyd, Sigur Rós, Godspeed You Black Emperor!. Þetta eru þær hljómsveitir sem hafa sennilega haft hvað mest áhrif á þá tónlist sem ég hlusta á en samt fá þær mjög litla spilun hjá mér.
Langaði svona að fá álit ykkar á þessu, hlustið þið á þær hljómsveitir sem eru ykkar uppáhalds reglulega?

SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. bergen skrifaði þann 21. november kl. 01:44

    Þær taka svona syrpur hjá mér annað slagið. Á þessum lista hjá mér eru sennilega At The Drive-In, Tool, The Mars Volta, Pink Floyd og Radiohead. Þær eru ekki í reglulegri spilun en fæ annað slagið svona flashbackþörf í eitt band í einu og hlusta þá kannski bara helling á viðkomandi band í svona viku. Svo dettur inn nýtt stöff sem smellir gamla góða niðrí skúffu aftur.

  2. hjalti skrifaði þann 21. november kl. 01:46

    Já skil hvað þú meinar Bjöggi en það er oftast svo mikið flæði af einhverju nýju að þetta gamla góða kemst aldrei að hjá mér.

  3. Ragnar Freyr skrifaði þann 21. november kl. 13:06

    Mér hefur alltaf fundist erfitt að svara þessari spurningu. Ég svara henni oftast að þessi og þessi hljómsveit sé „ein“ af mínum uppáhalds hljómsveitum. Sama gildir um spilunina hjá mér. Ég spila þessar uppáhalds hljómsveitir sjaldan en þegar ég spila þær líður mér vel.

    „Einar“ af mínum uppáhalds hljómsveitum eru: Portishead, The Cinematic Orchestra, Massive Attack, múm, 4 hero, Kraftwerk, Underworld, Zero 7, The Decemberists og The Shins.

    Þetta er einmitt hljómsveitir sem hafa mótað tónlistaráhuga minn í gegn um tíðina á einhvern hátt. Ég hef þá ekki með þessar early hljómsveitir eins og Guns 'n' Roses og Prodigy. Svo eru aðrar hljómsveitir og aðrar stefnur sem höfðu mikil áhrif en kallast kannski seint uppáhalds. Eins og Roni Size, Goldie, Nirvana, Ed Rush and Optical, Tortoise, The Wiseguys og fleiri.

    Eins finnst mér eins og ég geti ekki sagt að „nýjar“ eða nýuppgvötvaðar hljómsveitir hjá mér séu uppáhalds hljómsveitirnar mínar eins og t.d. Architecture in Helsinki, Hot Chip og fleiri.

    Niðurstaða: Það er allt of mikið af góðri tónlist þarna úti. Það er erfiðara en andskotinn að finna sér uppáhalds.

  4. Trausti skrifaði þann 21. november kl. 20:51

    Radiohead, Sigur Rós og Godspeed you black emperer hjá mér. Samt hlusta ég sjaldan á Radiohead og Godspeed núorðið.
    Alltaf eitthvað nýtt stórkostlegt sem ég finn en þessar eru samt alltaf uppáhalds, held bara að engin hljómsveit hafi toppað gæsahúðina sem þessar gáfu mér forðum daga :)

  5. Einar Birgir skrifaði þann 21. november kl. 22:29

    Það er frekar erfitt að pikka út uppáhalds hljómsveitir / tónlistarmenn. En í fljótu bragði get ég nefnt Beach Boys, Elliott Smith, Pavement, the Smiths, Belle & Sebastian, Stereolab og the Shins... og er ég alveg örugglega að gleyma einhverju. En þetta er einhvað sem maður sækir alltaf aftur og aftur í þó þetta sé kannski ekki reglulega í spilun. Of mikið af nýju stöffi sem flæðir yfir mann ;)

  6. hjalti skrifaði þann 21. november kl. 22:56

    Æj æj ég gleymdi Belle and Sebastian.. hún er klárlega á topp 5.

  7. Gummi Jóh skrifaði þann 22. november kl. 13:02

    Uppáhaldshljómsveit er svo erfitt orð en ef ég ætti að reyna að svara þessu að þá eru Bítlarnir, Beach Boys, The Who og Belle & Sebastian þar fremst í flokki.

    Ég hlusta kannski ekkert skipulagt á þær þar sem nýtt dót fær meiri tíma í spilaranum er það samt svo að um leið og mér dettur ekkert í hug að hlusta á að þá getur öll discographía Bítlanna og Belle hlaupið í gegn og ég bara hæst ánægður með það enda eðalstöff á ferðinni.

  8. Karen skrifaði þann 22. november kl. 17:10

    Já verð að taka undir hina sem geyma/gleyma uppáhaldstónlistinni af og til! Ég hlusta ekki á þær stundum svo mánuðum skiptir. Og finnst það allt í lagi. Eins og með vini sem maður hittir ekki oft en eru samt gullmolar þegar maður hittir þá. :)

    .... en uppáhaldstónlistin mín er þessi (svona um það bil): Bítlarnir, Smashing Pumpkins, Pixies, Maus...... en svo hefur í gegnum tíðina bæst við listann: David Bowie, Decemberists, Jeff Buckley.....

    og það er alltaf svo gott að grafa upp diskana sem ég elska mest, til dæmis Adore!

    Karen

  9. Díana skrifaði þann 22. november kl. 20:07

    Um leið og ég sá þessa umræðu fór ég að velta fyrir mér hvaða væru mínar uppáhalda hljómsveitir. Svo virðist sem að minnsta kosti tíu hljómsveitir séu á topp 5 listanum. Getur verið erfitt að velja úr, hvað er virkilega góð hljómsveit og hvað er manns uppáhalds. En ég held ég hafi náð að setja þetta niður á blað. Smashing Pumpkins (greinilegt að DJ, KDK og HJ vorum á sama skeiði), Foo Fighters er önnur uppáhalds. Einnig myndi ég leyfa Moby og Keane að fljóta með á listann.

    Díana

  10. elfa skrifaði þann 24. november kl. 00:52

    ef ég myndi skrifa mínar uppáhalds hérna yrði ég líklega grýtt, allavegana útskúfuð úr heimi menntaðs og tónlistarhæfs fólks... þannig að ég geri það ekki, leyfi ykkur bara að halda áfram að ég sé svöl og með góðan tónlistarsmekk

  11. hjalti skrifaði þann 24. november kl. 01:04

    haha,, gott elfa! Ég held samt að ég hafi beint þér á rétta braut!

  12. elfa skrifaði þann 24. november kl. 01:05

    ekki var hún þó nógu bein til að beygja mér frá þeim allrabestu...

  13. Davíð Alexander skrifaði þann 24. november kl. 19:23

    Ég er forvitinn að vita hvaða bönd þetta eru hjá elfu...

    Þegar ég er viss um að enginn sjái til eða heyri, þá hlusta á ég Whigfield - When I Think of You.

  14. elfa skrifaði þann 24. november kl. 23:53

    það er svona í sama flokki og Whigfield...;)

  15. Nonni Kiddi skrifaði þann 25. november kl. 00:32

    Þetta er allt frekar athyglivert hjá ykkur og skemmtilegt að sjá að DJ, KDK, HJ eru Smashararr... (Eitthvað sem kemur ekki á óvart) en auðvitað verð ég að taka undir með þessu annars frábæra fólki. En ég held að þið séuð að gleyma bestu hljómsveit síðustu aldar. Sænska stórhljómsveitin Ace of Base þar sem Breggren fjölskyldan fer á kostum. Hver man ekki eftir smellum á borð við Happy Nation og All that she wants.

    Auk þess er Wigfield alltaf í uppáhaldi!!!

    Kv. Nonni Kiddi

  16. Hjalti skrifaði þann 25. november kl. 01:24

    hah góður Nonni!

  17. Stígur skrifaði þann 29. november kl. 01:48

    Ætli mitt uppáhald sé ekki...Velvet Underground, Nick Cave, Soft Machine, Tortoise, Morphine, Can...eða eitthvað. Allt ratar þetta reglulega í alla mína spilara.

  18. Rúnar Sigurður Sigurjónsson skrifaði þann 3. december kl. 02:45

    AQUA!!!

    og málið er dautt....

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.