HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

24.11.2005 00:44 | TÓNLIST

TÓNDÆMI

Ég er búinn að skrifa einhverjar rosalegar færslur nokkrum sinnum og stroka þær svo allar út aftur. Held bara að það fari mér ekki að blogga. Ég hef hinsvegar ákveðið, sökum þess hversu latur ég er að skrifa um tónlist, að ég muni reyna oftar að brydda upp á tóndæmi dagsins. Þetta er ekki ósvipað og Gummi Jóh, rjómafélagi minn er oft með. Í kvöld er tóndæmi dagsins með geimrokkbandinu Slowdive. Þetta er alls ekki nýtt en það má heyra áhrifin frá þessari hljómsveit í mörgu nú til dags. Draumkennt rokk/popp af beztu plötu sveitarinnar Souvlaki og heitir „When the Sun Hits”.


SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. e skrifaði þann 24. november kl. 00:53

    er að hlusta á james blunt þannig að ég vil ekki trufla það með þínu lagi... híhí :Þ

    fulli kall

  2. hjalti skrifaði þann 24. november kl. 00:56

    james blunt er einhver helvítis rola!

  3. bergen skrifaði þann 24. november kl. 23:24

    Ég er að hlusta á Ricky Martin þannig að ég vil ekki trufla það með þínu lagi híhí tíhítíhí lolrofl!

  4. bianca skrifaði þann 4. december kl. 20:43

    i don't know who you are or where you're from but THANK YOU for posting slowedive - when the sun hits. i haven't couldt find it any where for months, and now i've got it.

    thank you for sharing.

    bianca, denmark.

  5. Hjalti skrifaði þann 4. december kl. 23:12

    hah, welcome!

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.