HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

02.12.2005 22:33 | TÓNLIST

BELLE & SEBASTIAN

Syd BarretÉg veit ekki hvernig mér tókst að gleyma einni uppáhalds hljómsveitinni minni í síðustu færslu. Belle & Sebastian eru konungar indie-poppsins (í mínum augum allavegana). Ég kynntist indie-poppinu almennilega þegar Siggi minn keypti Belle & Sebastian plötu á tilboði í Pennanum á Akureyri. Ég held ég hafi hlustað á plötuna mörg hundruð sinnum enda var þetta besta plata sveitarinnar, nefnilega, If You're Feeling Sinister.
Núna er hinsvegar að koma ný plata frá þeim sem heitir The Life Pursuit, og ég held ég verði að fullyrða að þetta er besta platan þeirra síðan If You're Feeling Sinister kom út. Hún er alveg frábær! Alveg rosalega góð og ég verð glaður þegar ég hlusta á hana.
Hver ætlar að koma með mér á tónleika eftir áramót? Sjálfboðaliðar óskast!

Uppfærsla


Þegar ég hlusta á "White Collar Boy" á nýrri plötu Belle & Sebastian líður mér eins og ég sé að hlusta á gamalt lag með Pink Floyd, á þeim tíma sem Syd Barret var ennþá með öllu mjalla. Ég er ekki frá því að "White Collar Boy" sé tribute til "See Emily Play" með Pink Floyd! Vonandi er ég fyrsti maðurinn á internetinu til að koma með þessa samlíkingu, enda enginn farinn að dæma plötuna svona snemma! HAH!

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.

TIL BAKA