26.12.2005 14:28 | TÓNLIST
ÁRSLISTI RJÓMANS
Í dag birti Rjóminn listann yfir beztu íslensku sem og erlendu plötur ársins. Fínn listi, nokkrar plötur þarna sem ég veit reyndar ekkert hvað eru að gera þarna en við erum með skemmtilega fjölbreyttan smekk sem skilaði sér þó í einróma niðurstöðu (allavegana í efstu þremur sætunum).Annars sé ég mest eftir að hafa ekki gefið Bright Eyes, og plötunni hans "I'm Wide Awake, It's Morning", nokkur stig. Frábær plata. Það kom samt ekki að sök þar sem hún hafnaði í þriðja sæti, enda vel að því komin. Eiginlega sé ég meira eftir að hafa ekki farið á tónleika með stráksa þegar ég var í New York í vor. Tóndæmið er því með hinum unga Conor Oberst og afþví það eru nú einu sinni jólin þá held ég að það sé óhætt að skella tveimur lögum á ykkur.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.


SENDU ÞITT SVAR
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.