30.12.2005 23:25 | TÓNLIST
TRIBUTE?
Ég get ekki annað en skrifað um tónleikana sem ég fór á í gær. Þetta voru tribute-tónleikar
til heiðurs Elliott Smith. Hljómar mjög vel enda mjög fær tónlistarmaður en eitthvað hefur þeim mistekist að velja rétta fólkið til að flytja lögin hans. Hver tónlistarmaður hafði valið sér (að ég held) 2-3 lög eftir Elliott Smith og reyndi að flytja þau.Þegar sá fyrsti steig á svið leist mér ekki allt of vel á, enda hafði hann tekið textana með sér. Það gat ekki boðað gott. Það var nú ekki betra en svo að honum tókst ekki einu sinni að syngja rétta texta þrátt fyrir hjálpartækin og leið mér strax hálf vandræðalega þarna.
Ég hugsaði nú með mér að þetta gæti ekki annað en batnað en eftir því sem lengra leið og fleiri tónlistarmenn stigu á stokk hætti mér alveg að lítast á blikuna.
Nánast allir byrjuðu á að afsaka sig, einn hafði bara valið lagið daginn áður og kunni það því ekki almennilega, annar hafði lítið sem ekkert æft sig, sá næsti var rosalega lélegur á gítar en ætlaði samt að reyna og svo framvegis.
Ég held ég hafi aldrei verið með jafn mikinn kjánahroll, svo slæmt var þetta að í einu atriðinu leið mér hreinlega svo illa að ég varð að fara niður á klósett til að heyra ekki öll ósköpin.
Ég verð nú samt að minnast á að Haukur Heiðar í Dikta og Kalli í Without Gravity komu best út úr þessu og gerðu þetta vel. Besti flutningurinn var án efa þegar Haukur Heiðar tók Kings Crossing af síðustu plötu Elliott Smith.
Þetta hefði getað endað sæmilega ef að Kalli hefði fengið að enda þetta en á eftir honum kom annar kappi sem ákvað að taka íslenska útgáfu af einu lagi. Ég náði því nú ekki einu sinni hvaða lag þetta var sem hann tók, svo hratt flýtti ég mér út.
Held að þetta séu verstu tónleikar sem ég hef farið á.... jáj blessaður skúter þú varst bara fínn!
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.


SVÖR FRÁ LESENDUM
bergen skrifaði þann 30. december kl. 23:32
Geggjað, synd að missa af þessu, missti af scooter líka, djö, ég er svo feitast ekki "in" í dag.
hjalti skrifaði þann 30. december kl. 23:35
KGB var nú svo hress að hann byrjaði á því að segja að hann myndi potþétt klikka svona einu sinni. Hefði betur sagt að hann myndi pottþétt klikka svona 10 sinnum!
Svo sagði hann, jáj skoh ég kann nú eiginlega ekkert að spila svona samt, ég er vanur að spila eitthvað miklu einfaldara...
bergen skrifaði þann 30. december kl. 23:39
Held að fólk hafi eitthvað misskilið orðið "tribute", held að tribute eigi nú að vera öðrum til sóma en ekki skrumskæling á verkum þeirra, eins og þetta hljómar frá þér komið.
Fussumsvei!
björk skrifaði þann 30. december kl. 23:50
íslenska útgáfan hans Begga í Shadowparade á "Angeles" þykir mér alls ekki slæm. En það er miklu erfiðara að flytja Elliott Smith en maður heldur, hann sjálfur söng alltaf 100% hreint (veit ekki hvort það er autotune að þakka, en ég elska hann samt), og hann söng erfiðar laglínur svo áreynslulaust að þær hljóma bara einfaldar. Þannig hagar sér að mínu mati vel æfður tónlistarmaður með metnað og hæfileika :) Æi vá hvað ég hefði viljað vera þarna!
Hjalti skrifaði þann 31. december kl. 00:03
Ég var ekki að segja að það væri auðvelt að flytja lögin hans. En ef maður byrjar á að afsaka sig og segja að maður hafi ekki æft sig og muni pottþétt klúðra þessu þá á maður ekkert að vera að reyna þetta.
björk skrifaði þann 31. december kl. 00:07
jájá, ég er sammála. ef maður fer líka með afsakanir í hausnum upp á svið þá er útilokað að maður geti skapað "stage magic" og þar með dregið athyglina að því sem er gott og skemmt sér vel í staðinn fyrir að deyja alltaf innra með sér þegar eitthvað er falskt (og þar með gera það enn sýnilegra).
Gúndi skrifaði þann 31. december kl. 04:04
Hahh. Mig langaði einmitt alveg rosalega að fara en einhvernvegin tókst mér að gleyma þessu. Eftir þessa frásögn þína er ég, satt best að segja, gríðarlega feginn að hafa misst af þessu. Ég hefði örugglega endað á því að lemja mann og annan. :) *reiður*
addi elding skrifaði þann 31. december kl. 06:25
já þetta var hræðilegt... við fórum eftir herlegheitin heim til hjalta og hlustuðum á either/or, á leiðinni heim hlustaði ég á xo og svo þegar ég var kominn heim hlustaði ég tvisvar á elliott smith.
rétt náði að hreinsa huga minn af þessum tónleikum.
Einar Birgir skrifaði þann 1. january kl. 17:57
Ég ætlaði einmitt að kíkja en komst ekki.. kannski sem betur fer?! Elliott Smith er í svo miklu uppáhaldi hjá mér að það hefði verið erfitt fyrir mig að sitja undir þessu. Samt sem áður fínt framtak og mjög leiðinlegt að þetta skuli hafa misheppnast svona.
Sigurjón skrifaði þann 2. january kl. 06:30
Ekki fórstu á Skúter drengur?
Hjalti skrifaði þann 2. january kl. 09:43
Hahah,, jú maður.. við Höddi fórum að mynda hann. Rosalegar sprengingar og læti maður! Frekar vondir tónleikar samt :)
bergen skrifaði þann 2. january kl. 22:15
Hjalti fór blindfullur á scootertónleika og endaði með Ernu G upp á arminum og HP Baxter tattoo á vinstri rasskinn!
Hjalti skrifaði þann 2. january kl. 22:49
Það hefur nú alltaf verið vitað að við Erna G erum like this..
Pétur G skrifaði þann 3. january kl. 09:42
mikið er ég fenginn að ég var ekki viðstaddur þessar misþyrmingar á verkum þessa mikla meistara.
TIL BAKA
SENDU ÞITT SVAR
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.