09.01.2006 14:18 | TÓNLIST
UNICORNS > ISLANDS
Platan Who Will Cut Our Hair When We're Gone? með Unicorns var ein af betri
plötum 2003 að mínu mati. Stuttu eftir hana hætti hinsvegar hljómsveitin flestum til mikilla vonbrigða enda mjög góð sveit sem hefði getað gert fleiri góðar plötur. Núna hafa tveir af þremur meðlimum Unicorns stofnað nýtt band sem heitir Islands og er að senda frá sér sína fyrstu plötu á þessu ári.Þegar maður hlustar á plötunar heyrir maður strax að þetta er nánast sama bandið en ýmislegt hefur samt breyst. Allt hráa soundið sem var einkennandi á Who Will Cut... er horfið og í staðin eru lögin mikið pródúseruð með strengjum, flautum og öðrum blásturshljóðfærum. Í raun allt saman miklu þroskaðra og fullorðinslegra en áður.
Hérna er lagið "Volcanoes" byrjar með skemmtilegum country (gobbeddígobb) fíling en svo bætast við strengir og verður allt saman mjög hresst í lokin.
Já og nýja platan heitir Return to the Sea.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.


SVÖR FRÁ LESENDUM
bergen skrifaði þann 10. january kl. 02:02
Hress plata, nema að helvítis rapplagið er pretty whack!
Davíð skrifaði þann 13. january kl. 12:34
Það mætti auðveldlega túlka fyrirsögnina þannig að Unicorns standi Islands framar, ekki að eitt hafi leitt til hins. En það er kannski rétt.
Hjalti skrifaði þann 13. january kl. 14:23
Heh, jamm. Hugsaði út í það þegar ég skrifaði þetta, fannst það samt allt í lagi.
Islands eru ekki búnir að toppa Unicorns fyrir mér samt.
bergen skrifaði þann 14. january kl. 05:00
Persónulega finnst mér Unicorns platan miklu betri, allavega greip hún mig mun fastari tökum. Þetta hráa sound sem þeir höfðu var eitthvað svo einkennandi. Og svo fer þetta helvítis rapplag svoo í taugarnar á mér á Islands disknum!
TIL BAKA
SENDU ÞITT SVAR
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.