18.01.2006 01:25 | TÓNLIST
MEIRA FRÁ SVÍÞJÓÐ!
Það er ekki svo langt síðan ég skrifaði örlítið um sænska bandið Love is All. Núna er kominn
tími til að skrifa um sænska snillinga sem kalla sig Suburban Kids with Biblical Names. Þetta eru tveir guttar sem eru að gera þrælskemmtilegt indípopp. Einar Birgir var alltaf að reyna benda mér á þetta í vetur en ég var eitthvað of upptekinn af öðru. Fyrir nokkrum vikum sótti ég svo nokkur lög með þeim en gleymdi því aftur þangað til Siggi benti mér á frábært myndband hjá þeim. Mæli bara með því að allir horfi á þetta hressandi myndaband og hlusti svo á "Loop Duplicate My Heart" á eftir því.- Suburban Kids with Biblical Names - Rent a Wreck (mov)
- Suburban Kids with Biblical Names - Loop Duplicate My Heart
Annars var ég að finna danskan hönnuð sem heitir Henrik Vibskov og ég held að hann geri flottustu peysur í heiminum. Hversu flott er þessi peysa? Og já, ég ætla að eignast svona peysu.
Uppfært
Ég á núna svona peysu. Takk Hörður!
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.


SVÖR FRÁ LESENDUM
Sveinn skrifaði þann 18. january kl. 11:08
já, og þessi jakki hjá dsquared2 er örugglega það flottasta sem ég hef séð, verst að hann kostar $3114
karen skrifaði þann 18. january kl. 14:20
sænskt er flott
karen skrifaði þann 18. january kl. 14:25
ég held að ég hafi hlustað á tvö lög í einu
þetta hljómaði allavega þannig og gerði mig ringlaða
Hjalti skrifaði þann 18. january kl. 14:32
Jább sammála því Sveinn, brjálaður jakki og vá hvað hann er dýr.
Einar Birgir skrifaði þann 18. january kl. 18:30
Áfram Svíþjóð! :)
Mæli með að þú tjékkir á dúettnum Springfactory (ef þú ert ekki búinn að því nú þegar) en Peter úr SKWBN er einmitt annar helmingurinn í því eiturhressa bandi.
Hjalti skrifaði þann 19. january kl. 00:04
Tjékka á þessu Einar, kannast samt við þetta.
Grímur frændi skrifaði þann 24. january kl. 02:08
Ég er sænskur, og því betri heldur en þið.
Hah.
Hjalti skrifaði þann 24. january kl. 11:16
haha, flottur frændi og takk fyrir síðast (og takk fyrir bjórinn).
Hörður skrifaði þann 24. january kl. 14:01
haha það var nú lítið Hjalti minn.
en þú færð hana náttúrulega ekki fyrr en þú kemur í heimsókn! höhö
Hjalti skrifaði þann 24. january kl. 20:58
Hö og DCFC hér kem ég!
Grímur frændi skrifaði þann 16. february kl. 18:46
„Vestfjarðarninjinn“
Sönn saga um einn öflugasta ninjamann vestfjarða á tímum ninjastríðanna. Fjallar um Eyjólf Jónsson, bónda, sem gerðist ninji til að verja sveitabæ sinn og varð þjóðarstolt Íslendinga um aldabil.
„Frábær saga, fullkomlega færð á blað af meistara Trausta Sveinsson“ - mbl.is
„Trausti varpar nýja mynd á mesta ninjamann okkar tíma, Eyjólf Jónsson, sýnir þær mörgu hliðar sem hann átti; faðir, eiginmaður, bróðir og síðast en ekki síst, ninji“ - Regínáldur Bermingsson, Fréttablaðinu
Tengdar bækur og greinar:
„Ninjastríðin: árin sem komu á óvart“ eftir Trausta Sveinsson
„Suðurstrandaninjarnir“ eftir Trausta Sveinsson
„Ninjar: Stutt yfirlit“ eftir Trausta Sveinsson
TIL BAKA
SENDU ÞITT SVAR
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.