HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

06.03.2006 19:19 | ALMENNT

SORGLEGT...

Í dag er ég sorgmæddur, jú því í dag er mjög sorglegur dagur. Málið er að síðan mín er ekki lengur efsta færslan á Google þegar leitað er að "Hjalti". Í staðin er kominn "Hjalti Wikinger", sem er eflaust ágætis grey en síðan hans er mjög vond og á tæplega skilið að vera efst. Ég þarf klárlega að gera eitthvað í málunum eins og að lauma linkum á síðuna mína á alla vefi sem ég hef komið nálægt, já eða hef völd yfir.
Ef þú ert að lesa þetta en ert ekki með link á mig þá verður þú greinilega að hugsa þinn gang.

Tóndæmið er með bandinu Tapes 'n Tapes og heitir Insistor.

Uppfært


Sýnist ég hafa endurheimt fyrstasætið mitt. Vil þakka öllum þeim sem hafa linkað í mig og sérstaklega þeim sem gerðu sérstakar ráðstafanir til að bjarga þessu, það voru eftirtaldir aðilar.


SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. Ari skrifaði þann 6. march kl. 19:40

    Hehe, ég tel mig hér með hafa gert allt sem ég get gert í málinu... :) (sjá www.arinn.net)

    gangi þér annars vel í baráttunni

  2. Hjalti skrifaði þann 6. march kl. 19:43

    Takk Ari minn!

  3. Rúnar skrifaði þann 6. march kl. 19:59

    Ég setti á fót sérsíðu bara fyir þetta, það sem ég er að gera með þessu er að byrja BLOGGA aftur bara svo að Hjalti fái link :D Hvað eru mörg vinastig í þessu.. haa haaa??

  4. Hjalti skrifaði þann 6. march kl. 20:00

    Hah, 150 kúlstig!

  5. Andri skrifaði þann 6. march kl. 21:24

    Damn, ég er númer 8 á google :/ Annars þarftu bara að finna einhverja síðu sem er með gott PageRank og lauma þínum link á hana ;)

  6. Hjalti skrifaði þann 6. march kl. 22:01

    Ég þakka stuðninginn, mér sýnist ég vera kominn efst aftur núna! Til hamingju ég!

  7. Björgvin Guðna skrifaði þann 7. march kl. 08:43

    búinn að hafa link á þig forever ljúfurinn :D hvernig væri að linka á mann tilbaka!

    mitt shit kemur ekki einu sinni upp þegar ég googla!

  8. addi skrifaði þann 7. march kl. 09:19

    Verður bara að gera víkinga undirsíðu.

  9. Hjalti skrifaði þann 7. march kl. 10:32

    Björgvin minn, það er þessi fíni linkur á þig af síðunni "Ég" en kannski ekki mest áberandi.. hmm ha.

  10. Bergen skrifaði þann 7. march kl. 11:46

    Cowbell rústar Insistor!

  11. elfa skrifaði þann 16. march kl. 17:30

    þú heimtaðir að ég mundi setja link á þvi og svo fæ ég ekki einusinni að vera á þakkar listanum... kommonm greiði fyrir greiða

  12. Bjarki skrifaði þann 21. march kl. 13:31

    Hmm, þú ert dottinn niður í þriðja sæti samkvæmt því sem ég sé. Í öðru sæti er einhver blogspot síða! Hvurslags eiginlega...

  13. hjalti skrifaði þann 21. march kl. 20:24

    já ég held ég þurfti bara að skrifa mína eigin leitarvél.. þetta googledót er að nota eitthvað úrelt system.

  14. Gunnar Sturla Ágústuson skrifaði þann 22. march kl. 20:09

    Ef þú mundir setja tengil á forsíðuna þína í hvert skipti sem einhver segir "Hjalti" þá ætti google að vera fljótt að fatta, gerði þetta sjálfur með síðuna mína og það kom vel út

    Þú gætir reynt að búa til eitthvað php script svipað og einhvers konar word-filter sem setur tengilinn inn

  15. Bergen skrifaði þann 30. march kl. 04:14

    Hjalti er þokkalega kominn efstur aftur. Ég held samt að leyndarmálið sé að setja bara nóg af nöktum gellum á forsíðuna. Hjalti, make it happen!

  16. Karen skrifaði þann 31. march kl. 21:50

    Nú ertu líka efstur á tenglalistanum mínum, aftur. Francis McKee hefur vikið og er nú vart sjáanlegur.

  17. Sveinn skrifaði þann 7. april kl. 21:58

    þú ert aftur númer 2.. :/

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.