HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

05.04.2006 21:05 | TÓNLIST

FÍNT PARTÍ!

Jæja ég er í prófum, sem þýðir bara það að maður nennir frekar að blogga um ekki neitt en að læra. Gott og vel, fólk hefur verið að nöldra yfir fáum uppfærslum og lélegu flæði upplýsinga á þessum vef mínum, sérstaklega þá skort á tónlistarbloggi.
Ég er alltaf alveg að fara að skrifa um það fínasta sem ég hef fundið en svo fresta ég því og það endar með því að einhver annar ágætur emmpjéþrírbloggari skrifar um það og þá nenni ég því ekki lengur. Núna var ég hinsvegar að komast yfir nýja plötu með Lo-Fi-FNK sem komu einmitt á Airwaves á síðasta ári. Platan heitir Boylife og það virðist vera alveg ágætis kraftur í henni og að minnsta kosti þrjú eða fjögur fín lög.
Fyrra lagið er helvíti hressandi lag sem þyrfti ekki nema svona 20bpm í viðbót og þá værum við komin með góðan danssmell.
Ég gæti hinsvegar alveg hugsað mér að dansa við seinna lagið næsta laugardag!
Myndin er frá Iceland Airwaves 2005

Ps. Svo eru þeir líka frá Svíþjóð!

SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. bergen skrifaði þann 6. april kl. 00:52

    Skoh, þeir voru geggjað hressir á airwaves, og ég diggaði demoið í tætlur, en persónulega finnst mér þessi diskur eitthvað weak... Demoið fannst mér æði og öll lögin voru eitthvað svo skemmtilega öðruvísi, funky taktar og mikil gleði í gangi, en á þessari breiðskífu eru þeir einum of uppteknir af því að hlægja að rauða g-strengnum sem að bassaleikarinn í hnéháu sokkunum keypti í djóki því hann er svo fliippaður.

  2. Rúnar skrifaði þann 6. april kl. 01:38

    Þeir voru massaðir á Airwaves,, alveg hljómuðu fast í hausnum á mér í marga daga á eftir...

    Enn djöful voru þeir samt hýrir á brá,
    manni bara brá

  3. Karen skrifaði þann 6. april kl. 11:29

    Einhver er kominn í sumarskap...

    sænskt er best!

  4. Hjalti skrifaði þann 6. april kl. 12:10

    Já þeir eru frekar hýrir held ég, platan heitir líka boylife :)

  5. bergen skrifaði þann 6. april kl. 17:51

    Jæja eftir smá reynslutíma og leigupláss á iPodinum þá er þessi plata pinku að vinna á. Mér finnst hún ekki ennþá ná hressleikanum á demoinu (Change Channel er náttúrulega bara brilliant lag), en svona já, þetta er allt að koma.

  6. Einar Birgir skrifaði þann 11. april kl. 10:49

    Ójá. Mjög hressandi plata í prófunum!

  7. bergen skrifaði þann 18. april kl. 01:37

    Ok þriðja endurskoðun... Adore og Stepping out eru alveg hreint mögnuð lög. Restin er fín, ekkert frábær, en fín.

  8. JJ skrifaði þann 9. may kl. 20:05

    Hvernig er það, er þessi síða aldrei uppfærð? ;-)

  9. hjalti skrifaði þann 10. may kl. 01:50

    heyy siis, setti inn nokkrar myndir!

  10. Sveinn skrifaði þann 2. june kl. 20:32

    bloggaðu beib, bloggaðu

  11. Sigurjón skrifaði þann 7. june kl. 05:31

    Bloggaðu þarna helvítið þitt!

  12. elfa skrifaði þann 24. june kl. 14:31

    þú ert ööömurlegur boggari og heimasíðuuppihaldari... heldur að það sé bara nóg að búa þær til! nei

    kúkur

  13. Krilli skrifaði þann 25. june kl. 20:05

    Ég er að fela mig, greinilega með ágætisárangri.

    Bloggaðu drengur!

  14. Nína skrifaði þann 27. june kl. 13:54

    Vá Hjalti, duglegur að blogga. Rúst rúst rúst rúúst!

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.