HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

30.06.2006 17:31 | ALMENNT

SUMAR

Það er komið sumar og hver nennir að blogga á sumrin? Eru ekki allir úti að grilla og drekka bjór eða þá að horfa á fótbolta og drekka bjór.
Annars er ég búinn að skipta og núna hittumst við Windows oftast bara þegar ég nota símann minn.

Nú fer að styttast í tónleika Belle & Sebastian fyrir austan, jább ég ætla að keyra yfir landið endilangt til að sjá þau. Mér fannst einhvernveginn aðeins meira spennandi að keyra út á land og gista í tjaldi í einhverjum smábæ, en að labba í 10 mínútur niðrá Nasa.

Svo er stefnan sett á tónlistarhátíð í Belgíu dagana 17-19. ágúst. Þar eru spila nokkur ágæt bönd eins og Radiohead, Belle & Sebastian, Hot Chip, Yeah yeah yeahs, Magic Numbers, Zero 7, Massive Attack, Daft Punk, Tv On The Radio, Broken Social Scene, Dresden Dolls, My morning Jacket, Album Leaf, Mew og fleira...

Annars vorum við að klára nýjan vef fyrir Naked Ape. Tolli teiknaði og ég sá um nördahlutann+ljósmyndun.

Ætli ég verði ekki að skella með tóndæmi fyrst ég er að þessu, hérna eru tvö lög með Peter Bjorn and John. Auðvitað sænskt, hvað annað?


SVÖR FRÁ LESENDUM

  1. bergen skrifaði þann 30. june kl. 18:39

    Vei, nýtt blog... að vísu allt old news fyrir mér, en ég var fyrstur til að commenta, sem er frekar kúl.

  2. Andri skrifaði þann 30. june kl. 19:27

    Get out of here .. sjáumst fyrir austan! :)

    http://andrisig.wordpress.com/2006/06/27/allt-getur-gerst/

  3. björgvin Guðnason skrifaði þann 1. july kl. 06:28

    össs mér líst heiftarlega vel á belgíu gleðina!

  4. Áa skrifaði þann 2. july kl. 21:21

    Vá, þetta er ein mest kreisí dagskrá sem ég hef séð þarna í Belgíu.

  5. karen skrifaði þann 2. july kl. 22:32

    flott lög eins og oftast.
    Og gott hjá þér að drífa þig út.
    Og annað.. Smiths/Morrissey !

  6. Hannes skrifaði þann 2. july kl. 23:38

    Er Massive Attach einhver ný hljómsveit sem maður á eftir að uppgötva eða var þetta bara prentvilla? ;)

    Töff tóndæmi, btw.

  7. Hjalti skrifaði þann 3. july kl. 00:05

    hah, slakur ég. fixa þessa villu :)

  8. elfa skrifaði þann 3. july kl. 19:11

    hjalti gerir villu, það eru markverðar fréttir. takk annars fyrir lunch... niceí

  9. Einar Birgir skrifaði þann 5. july kl. 14:56

    Pukkelpop!! bölvaður! :)

  10. Díana skrifaði þann 6. july kl. 14:16

    Hey Gaur

    Hvernig er staðan hjá þér um Versló, á að koma heim?

  11. Hjalti skrifaði þann 6. july kl. 17:35

    Það var alveg pæling, Innipúkinn er alveg glataður þetta árið.
    Ætlið þið að lofa fjöri á ak?

  12. díana og karen skrifaði þann 7. july kl. 22:13

    auðvitað lofum við fjöri, .. ! díana er að smíða heilan bar fyrir partí aldarinnar, hver ætlar svosem að toppa það?
    hjalti þú kemur, ekkert múður.

TIL BAKA

SENDU ÞITT SVAR

Nafn*
Netfang (ekki birt)
Vefsíða
Ár (4 stafir)*#
Skilaboð*
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.