14.07.2006 16:11 | TÆKNI
DIABLEROS
You Can't Break the Strings in Our Olympic Hearts er ein besta plata sem ég hef heyrt í sumar. Þetta hráa indierokk í anda Interpol/Walkmen er bara ótrúlega skemmtilegt og grípandi. Við fyrstu hlustun virkar þetta kannski svolítið hrátt og söngurinn undarlega aftarlega/kæfður, en eftir nokkrar hlustanir verður þetta bara betra og betra. Óþarfi að skrifa allt of mikið um þetta band sem kemur frá Toronto, nema endilega gefið þessu séns.Hérna eru tvö lög.
Ps. Ég átti mjög erfitt með að velja lög vegna þess að mér finnst þau nánast öll jafn góð.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.


SVÖR FRÁ LESENDUM
Díana skrifaði þann 17. july kl. 15:38
Jæja tónleikar með Sigurrós í Ásbyrgi, sunnudaginn um versló. Þú verður hreinlega að koma norður.
Hjalti skrifaði þann 17. july kl. 16:35
Langt síðan það var ákveðið, kem líka 28. júní
karen skrifaði þann 17. july kl. 17:08
Á næsta ári þá?
elfa skrifaði þann 17. july kl. 18:13
hjalti er bara í því að klikka í málfarinu og stafsetningunni, eg velti því fyrir mér hvað veldur...? :o
hjalti skrifaði þann 17. july kl. 21:15
Æji voðalega eruði vond, ég meinti 28. júlí!
Díana skrifaði þann 18. july kl. 12:19
Jæja fyrst þú kemur norður þá geturðu alveg komið fyrr og komið í Hawaii partýið, ég skal blanda extra góðan drykk handa þér (með regnhlíf)
Hjalti skrifaði þann 18. july kl. 13:25
Hva voðalega er þetta flókið, ég var að segja þarna efst að það væri löngu ákveðið að ég færi til ak um versló.
Díana skrifaði þann 18. july kl. 14:08
Það þykir bara öllum svo vænt um þig, að við viljum vera alveg viss um að þú komir. Hehehe
Rúnar skrifaði þann 20. july kl. 20:38
Hjalti þú ert alltaf svo hress, 2 helgar í röð á ak, það er meira en ég höndla, læt nægja eitt stopp víííí
TIL BAKA
SENDU ÞITT SVAR
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.