07.12.2006 06:05 | TÓNLIST
BRÁÐUM KOMA JÓL..
Aha, bráðum koma jólin og ég hef varla skrifað staf hérna síðan í sumar. Skólinn fór af stað með látum og hélt svo áfram með lætin alveg fram að prófum. Eftir það fékk ég smá pásu sem var kærkomin en núna er allt orðið vitlaust aftur, glöggir lesendur sjá kannski að ég er að skrifa þessa færslu og klukkan er rúmlega 6. Ég er nefnilega að klára skýrslu fyrir morgundaginn, spennandi ha!Annars er ég búinn að vera upptekinn við að skrifa forrit sem ég mun væntanlega skrifa meira um á næstunni og jafnvel setja upp sér síðu fyrir ef allt gengur vel. Þetta er mitt fyrsta forrit fyrir Mac þannig ég er spenntur að sjá hvernig tekst til.
Ég ætla að enda þetta blaður með lagi með Sufjan Stevens. Hann hóf einmitt mjög svo góða tónleika sína á íslandi með þessu lagi. Þvílík byrjun á frábærum tónleikum, gæsahúð allan tímann. Ég held að þetta sé eina almennilega upptakan sem er til af þessu lagi svo njótið vel.
Ps. Fyrir þá sem athuga stundum hvort ég hafi sett inn nýjar myndir þá er ég duglegri að setja inn myndir á Flickr en hingað inn. Hérna er Flickr síðan mín.
#Þetta er til þess að gabba vélmennin sem reyna að pósta auglýsingum á síðuna. Eina sem þarf að gera er að slá inn árið sem er núna. Dæmi 1995.


SVÖR FRÁ LESENDUM
Bjorgvin Gudnason skrifaði þann 7. december kl. 11:19
nauuuuhhh ... spennandi að sjá hvað þú ert að bralla .. mac forrit! pabba líkar!
Björgvin skrifaði þann 7. december kl. 11:49
Augnablikin þegar að Hjalti bloggar, sem eru sjaldgæf, eru eins og fyrsta flokks fullnæging...
Mmhh....
Ohhh....
Aaaahhhh.h....
JAáááááA'A'A'AÆAÆAaa!#!3123131
Btw ég get vottað það að mac daddy forritið er þokkalega það svalasta sem sést hefur lengi.
Hjalti skrifaði þann 7. december kl. 13:40
Ég fann fyrir svipaðri tilfinningu þegar ég skrifaði þetta... eða ekki..
Díana skrifaði þann 12. december kl. 15:23
Ég myndi fara varlega með orðið "duglegri" í þessum málum drengur!
TIL BAKA
SENDU ÞITT SVAR
*Nauðsynlegt er að fylla í reiti merkta með rauðri stjörnu.