HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

21.02.2005 (4 MYNDIR)

REYKJANES Í ÞOKU

Ég byrjaði sunnudaginn á því að vera þunnur og þreyttur en reif mig svo upp úr þeim leiðindum. Ég, Anna Sigga og Rúnar skelltum okkur út á Reykjanes og tókum nokkrar myndir í þokunni.

12.02.2005 (8 MYNDIR)

BUMBUMYNDIR

Jæja, loksins uppfæri ég myndaalbúmið. Hérna eru bumbumyndir sem ég tók af Steinunni systur Önnu Siggu. Hafði lofað að gera þetta fyrir löngu en hafði ekki mikið lengri tíma svo ég...

28.10.2004 (3 MYNDIR)

JAKOB RAGNAR

Jæja.. loksins set ég inn nokkrar myndir af frænda litla. Hann fæddist 4. júlí og varð skírður Jakob Ragnar um daginn í höfuðið á Pabba og Ragnari bróður heitnum.

16.10.2004 (17 MYNDIR)

PRODIGY

Prodigy spiluðu í Laugardalshöll þann 15. október. Ég kíkti og tók myndir. Vonandi verð ég ekki kærður fyrir að birta myndirnar hér, en ég þurfti að skrifa undir eitthvað svakalegt plagg...

03.10.2004 (13 MYNDIR)

SCOOOOOOTER

Jáh! Við Höddi fórum á skúter! Þetta var rosalegt ljósasjóv og mikil lætin og ég held að ég hafi aldrei farið á "hressari" tónleika. Var með Mark-II í láni sem er ekki beint slöpp vél.

08.09.2004 (30 MYNDIR)

ALLT MÖGULEGT

Þetta er svona allt mögulegt sem ég hef verið að taka undanfarið. Mikið af þessu er fyrir Vamm en ekki allt þó. Ákvað að taka bara saman í eitt abúm frekar en að setja inn fullt af...

08.09.2004 (10 MYNDIR)

HJALTEYRI

Nokkrar myndir sem ég tók þegar við Trausti skruppum út á Hjalteyri. Ég hafði nú farið áður í myndatúr þangað en þá var maður enn með gömlu vélina og hafði takmarkað vit á þessu öllu.

08.07.2004 (35 MYNDIR)

PLACEBO & MAUS

Enn einir tónleikarnir og í þetta skiptið voru það Placebo og Maus sem spiluðu í Laugardalshöll 8. júlí. Maus byrjuðu og stóðu sig mjög vel svo komu Placebo og ég verð að viðurkenna að ég...

25.06.2004 (16 MYNDIR)

VAMM

Ég myndaði eitthvað fyrir VAMM, sem er nýtt blað um allt mögulegt. Flestar myndirnar voru reyndar croppaðar allar og ekkert eins og ég hélt að ætti að nota þær en það breytir svosem ekki...

25.06.2004 (16 MYNDIR)

DEEP PURPLE

Deep Purple spiluðu í Laugardalshöll 23. og 24. júní. Furðulega hressir bara, ég var nú ekki að mynda fyrir neitt sérstakt en ákvað að kíkja. Minnir að hljómsveit sem heitir Mánar hafi...


FYRRI SÍÐA NÆSTA SÍÐA